Miðvikudaginn 20. apríl komum við saman inn í sal til að kveðja veturinn og taka á móti sumrinu með sól í hjarta. Lesin voru sumarljóð, sumarsaga og speki um sumardaginn fyrsta. Svo var þurrkað rykið af vor- og sumarlögum. Lilja, Ólöf Dóra og Unnur Brynja í iðjuþjálfun sáu um lestur, einnig fengu þær aðstoð frá Þórhöllu Guðnadóttur.
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn